Wydarzenia

Spotkania, wydarzenia i zgromadzenia Partii Socjalistycznej.

Nadchodzące

Sósíalískir sunnudagar

Za 18 godzin kl. 10

Heitt á könnunni hjá sósíalistum Já, það er heitt á könnunni alla sunnudaga á Hverfisgötu 105 Reykjavík. Um að gera fyrir kaffiþyrsta og aðra að koma og spjalla um málefni líðandi stundar smakka kexið og vinna að því að bæta samfélag okkar með uppbyggilegum samræðum. Staðsetning: Hverfisgötu 105. Reykjavík. (Á horni Hverfisgötu og Snorrabrautar) Tími: alla sunnudaga frá klukkan 10:00 til klukkan 12:00 Efni: það sem efst er á baugi í samfélaginu, nýjustu vendingar í pólitík og annað áhugavert sem dæmi: Verðlag á matvöru, húsnæðismál, skattaumhverfið, umhverfismál, kapítalisma, sósíalisma, borgar- og sveitarstjórnar mál, friðarhreyfingar, átök í heiminum, NATÓ, ESB, AL, mennta og skólamál og svo allt annað sem kaffiþyrstir vilja ræða.

Nadchodzące
Facebook

Opið hús

Za 19 godzin kl. 11

Komið og heimsækið okkur á Hverfisgötu 105. Frambjóðendur verða á staðnum til að að hittast og svara spurningum. Nóg af kaffi og bakkelsi verður í boði og gott spjall. Sjáumst þar!

Nadchodzące
Facebook

Sunnudagspil Sósíalista

Za 21 godzin kl. 13:30

Næstu fjóra sunnudaga býður Sósíalistaflokkur Íslands til skemmtilegra samverustunda í húsakynnum flokksins — sunnudagur sem sameina félagshyggjuvist og borðspil í anda samhjálpar, leikgleði og samvinnu. 🃏 Fyrri hluti dagsins: Félagshyggjuvist Við byrjum á spilavist þar sem keppt er um sæti á vinsemdarlegan hátt. Á hverju sunnudagsspili verða veitt verðlaun fyrir tvo efstu, tvo neðstu og sérstök setuverðlaun. Að loknum fjórum sunnudögum verða einnig veitt heildarverðlaun fyrir þá sem eru stigahæstir í heildina. 🎲 Seinni hluti: Borðspilahittingur Að spilavist lokinni verður boðið upp á léttan borðspilahitting. Ýmis borðspil verða í boði og allir sem vilja spila eitthvað sérstakt spil sem þeir eiga sjálfir, mega gjarnan taka það með sér. 💸 Aðgangur: Ókeypis — en framlög í pappírsjóðinn eru afar vel þegin. 📅 Tími: 13:30-17:30 📍 Staður: Hverfisgata 105 Komdu og njóttu notalegrar stundar í félagsskap framsækins fólks!

Nadchodzące
Facebook

Minione wydarzenia

Tölum um réttlæti í skattkerfinu - Stefán Ólafsson

Czwartek, 5 marca 20:00

Er ekki kominn tími á að rýna í skattkerfið? Við viljum t.d. skattleggja fjármagnstekjur eins og aðrar tekjur. Er skattbyrgði almennings að aukast? Hvað með allt hitt? Dr Stefán Ólafsson, sem sinnir rannsóknum hjá Eflingu og fyrrverandi háskólaprófessor í félagsfræði, kemur og flytur erindi. Umræður á eftir. Öll velkomin. Húsið opnar kl. 19:30 Zoom verður í boði - fylgið þessum hlekk: https://us06web.zoom.us/j/89604815533?pwd=LagFFttTLix6Ji1vYspUuI4q1sHi7Z.1

Minione1
Facebook

Sósíalistafélag Kópavogs - Félagsfundur

Niedziela, 1 marca 15:00

Sæl og blessuð kæru félagar, Stjórn Sósíalistafélag Kópavogs boðar hér með til félagsfundar sunnudaginn 1. mars kl. 15:00 á Hverfisgötu 105. Stjórnin hvetur sem flesta félaga til að mæta og taka virkan þátt í mótun og skipulagningu kosningabaráttu sósíalista í Kópavogi. Fram undan eru mikilvæg verkefni og því skiptir máli að sem flest komi að borðinu. Hægt verður að finna heitt kaffi á könnunni, spjall um pólitík og jákvæða félaga. Dagskrá: 1. Undirbúningur fyrir sveitastjórnakosningar 2. Erindi frá félaga Marzuk 3. Umræða um áherslur 4. Önnur mál Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Minione
Facebook

Félagsfundur Febrúar 2026

Sobota, 28 lutego 10:30

Boðað er til félagsfundar Sósíalistaflokks Íslands 28. febrúar á Hverfisgötu 105. Húsið opnar klukkan 10:30 og fundurinn hefst stundvíslega klukkan 11:00. Boðið er upp á að taka þátt í gegnum Zoom að vanda og mun það einnig opna klukkan 10:30 svo tími gefist til að staðfesta skráningu í félagatal. Á Zoom þarf að koma fram undir fullu nafni og helst í mynd. Mikilvægt er að vera stundvís af virðingu við aðra fundargesti. Á fundinum munu fulltrúar frá Framkvæmdastjórn, Málefnastjórn og Kosningastjórn segja frá störfum stjórna og ræða helstu málefni. Félagsfólki gefst tækifæri á að spyrja spurninga og eiga umræður. Dagskrá er eftirfarandi: 1. Framkvæmdastjórn segir frá starfinu. 2. Málefnastjórn segir frá starfinu. 3. Kosningastjórn segir frá starfinu. 4. ROÐI segir frá starfinu 5. Sagt frá starfi svæðisfélaga 6. Frambjóðendur segir frá starfinu 7. Önnur mál Léttar veitingar verða í boði og öll framlög vel þegin. Félagsfundir eru frábært tækifæri til að kynnast starfinu betur og til að taka þátt. https://us06web.zoom.us/j/83108243320?pwd=NzdasLnmMFpyyOBEkCjkIF6NXN4lg9.1 Fundur stendur í um eina og hálfa klukkustund.

Minione
Facebook

Félagsfundur Sósíalistafélags Reykjavíkur

Czwartek, 26 lutego 18:00 – 20

Sæl kæru félagar, Stjórn Sósíalistafélags Reykjavíkur boðar félagsfund fimmtudaginn 26. febrúar klukkan 18:00 á Hverfisgötu 105. Þar sem mikið þarf að afgreiða á næstunni vegna kosninga er fundurinn boðaður með svona skömmum fyrirvara. Við hvetjum samt sem flesta félaga til að mæta enda mikilvæg málefni til umræðu. Dagskrá: 1. Fundarstjóri setur fundinn 2. Örstutt uppfærsla um stöðu starfsins 3. Kosningaáherslur í samgöngumálum og skólamálum (leik- og grunnskóla) kynntar, umræða um þær og loks kosning um drögin. 4. Önnur mál.

Minione
Facebook

Antonio Gramsci - Tölum um yfirráð

Czwartek, 19 lutego 20:00 – 22

Antonio Gramsci bætti við mikilvægum kenningum fyrir alla sem vilja skilja hvernig kapítalismi heldur áfram sem kerfi. Hann var fangelsaður af Mossolini fyrir glæpinn að hafa hættulegan heila (hættulegan fyrir fasisma). Meðan hann var í fangelsi skrifaði hann kenningar með því að nota dulorð til að komast undan ritskoðun fangelsisins, kallaðar fangelsisminnisbækur. Sæþór Benjamín Randalsson mun halda fyrirlestur og svara spurningum um Antonio Gramsci og hvernig hugmyndir hans eiga við um nútíma samfélag Íslendinga. Komdu og lærðu meira um hina miklu heimspekinga sem tengjast sósíalisma. Opið öllum. Taktu með þér vin.

Minione11
Facebook

Karaókí kvöld

Piątek, 13 lutego 20:00

Við höfum tæknina, svo við ætlum að gera það! Komdu og taktu þátt í fyrsta karaoke kvöldi Sósíalistaflokksins. Við munum reyna að hafa klassísk lög, en ef þú hefur lag sem þú vilt syngja, bættu því við í umræðuna svo við getum undirbúið okkur. Það verður snarl og drykkir í boði en ef þú vilt fá þér áfengi er það þitt eigið.

Minione
Facebook

I 28 więcej minionych wydarzeń...