Tilkynning

9. maí 2025

Aðalfundur Sósíalistaflokks Íslands haldinn 24. maí


Aðalfundur Sósíalistaflokks Íslands verður haldinn í Vorstjörnunni-Alþýðuhúsi, Bolholti 6, laugardaginn 24. maí kl. 11, húsið opnar kl. 10.

Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf auk ályktana og almennrar umræðu. Hægt verður að sækja fundinn á zoom (hlekkur fyrir zoom:https://zoom.us/j/5751158534)

Hér er hlekkur á kosningavef:Kosningavefur 

Dagskrá fundarins er þessi:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Fundarsköp 3. Skýrsla Framkvæmdastjórnar lögð fram 4. Reikningar lagðir fram til samþykktar 5. Lagabreytingar 6. Ákvörðun félagsgjalds 7. Kosning pólitísk leiðtoga 8. Kosning í stjórnir sem sem kveðið er á um í Skipulagi 9. Stjórnmálaályktanir fundarins og aðrar samþykktir 10. Önnur mál.

Félagar geta kynnt sér framkomnar tillögur um lagabreytingar á vef flokksins, sjá hér:Tillögur um lagabreytingar

Sósíalistaflokkurinn er grasrótarsamtök og styrkur hans hvílir á vilja félagsfólks til þátttöku. Félagar eru því hvattir til að gefa kost á sér til stjórnarsetu í einhverja af stjórnum flokksins: Kosningastjórn, Málefnastjórn, Framkvæmdastjórn, Baráttustjórn eða Félagastjórn. Sama gildir um hlutverk pólitísks leiðtoga flokksins. Um stjórnirnar má lesa í Skipulagi flokksins, sjá hér:Skipulag

Á vef flokksins gefst félögum sem vilja bjóða sig fram til stjórnarsetu færi á að kynna sig með mynd og stuttum texta. Koma þarf fram hvaða stjórn fólk bíður sig fram í. Samkvæmt Skipulagi flokksins er hverjum félaga aðeins heimilt að sitja í einni kjörinni stjórn. Vinsamlegast sendið þessa kynningu á: xj@xj.is. Félagar geta stuðst við þessar kynningar þegar kosið verður í stjórnir á Sósíalistaþingi. Nöfn þeirra sem bjóða sig fram munu verða á atkvæðaseðlum. Hér má sjá kynningar:Kynningar frambjóðenda í stjórnir

Hér má lesa framkomnar tillögur um ályktanir eða samþykkir:Ályktanir og samþykktir

Aðalfundur Sósíalistaflokks Íslands haldinn 24. maí | Sósíalistaflokkurinn