Sósíalistaflokkurinn
Ályktun gegn fangabúðum og lokaðri brottfararstöð

Frétt

3. apríl 2026

Ályktun gegn fangabúðum og lokaðri brottfararstöð

Við köllum eftir samstöðu með öðrum mannréttindasinnuðum hópum, vinnum saman og stöðvum mannréttindabrot.


Sósíalistaflokkur Íslands og ROÐI ungir sósíalistar fordæma fyrirhugaða “brottfararstöð” og kalla eftir mannúðlegri framkomu við hælisleitendur og aðra útlendinga. Drög að lagafrumvarpi lýsa engu öðru en fangabúðum og brjóta skýrt á barnasáttmálanum og almennum mannréttindum. Við köllum eftir algeri stöðvun á þessu frumvarpi og höfnum öllum áformum um lokuð úrræði.

Við köllum eftir samstöðu með öðrum mannréttindasinnuðum hópum, vinnum saman og stöðvum mannréttindabrot.