
Frétt
20. janúar 2018Ályktun Sósíalistaþings um verkalýðsmál: Gerum verkalýðshreyfinguna að baráttutæki almennings!
Sósíalistaþing 2018 hvetur allt launafólk til að taka þátt í endurreisn verkalýðshreyfingarinnar og gera hana á ný að baráttutæki almennings fyrir réttlátu samfélagi.
Það var vegna baráttu verkalýðshreyfingarinnar að velferðarkerfi var byggt upp á síðustu öld og stefnt að samfélagi aukins jafnaðar. Það er á sama hátt vegna hrörnunar verkalýðshreyfingarinnar á liðnum áratugumað félagslega húsnæðiskerfið hefur verið stórskaðað, gjaldtaka aukin í heilbrigðs- og menntakerfi og vegið með öðrum hætti að vernd og öryggi almennings.
Ályktun Sósíalistaþings í Rúgbrauðsgerðinni, 20. janúar 2018