
Frétt
23. mars 20263 efstu sæti í Kópavogsbæ
Sósíalistafélag Kópavogs tilkynnir hér með efstu þrjú sæti á framboðslista Sósíalistaflokks Íslands í Kópavogi í næstkomandi sveitarstjórnarkosningum. Markús Candi - Stuðningsfulltrúi og leikjahönnuður 26 ára Anna Ceridwen Auðnudóttir - Stuðningsfulltrúi og listfræðinemi 26 ára Marzuk Ingi Lamsiah Svanlaugar - Tölvunarfræðingur 29 ára
Sósíalistafélag Kópavogs tilkynnir hér með efstu þrjú sæti á framboðslista Sósíalistaflokks Íslands í Kópavogi í næstkomandi sveitarstjórnarkosningum.
- Markús Candi - Stuðningsfulltrúi og leikjahönnuður 26 ára
- Anna Ceridwen Auðnudóttir - Stuðningsfulltrúi og listfræðinemi 26 ára
- Marzuk Ingi Lamsiah Svanlaugar - Tölvunarfræðingur 29 ára
Húsnæðisöryggi er grundvallarréttur. Við segjum stopp við þeirri þróun þar sem fjárfestar og einkaaðilar stýra uppbyggingu bæjarins á meðan fólk nær ekki endum saman. Sósíalistar í Kópavogi krefjast þess að byggðar verði óhagnaðardrifnar íbúðir. Við eigum að byggja fyrir fólk, ekki einungis fjárfesta. Aðeins þannig vinnum við að lausn við húsnæðiskrísunni.
Kópavogur á að vera bær þar sem barnafjölskyldur blómstra. Við ætlum að beita okkur fyrir því að lækka kostnað við leikskólapláss - það er pólitísk ákvörðun sem bærinn getur og á að taka til að létta undir með fólki. Við viljum öflugt skólakerfi þar sem faglegt starf er virt og starfsaðstæður séu þannig að bæði börn og starfsfólk fái að njóta sín.
Við krefjumst þess að fullt aðgengi fatlaðra og hreyfihamlaðra sé tryggt í allri uppbyggingu, ekki síst í hjarta bæjarins þar sem þéttingin er mest. Við eigum sömuleiðis að hlusta betur á reynslu og þarfir eldri borgara; bærinn okkar á að þjóna fólki á öllum aldri og tryggja að engin verði skilin eftir í þróun samfélagsins.
Þörf er á raunverulegum úrbótum á almenningssamgöngum, með betri strætó, endurkomu næturstrætó og áframhaldandi uppbyggingu virkra ferðamáta víðar um bæinn. Markmiðið er að gera hversdaginn þægilegri með fjölbreyttum ferðamátum svo hver og einn geti valið þá leið sem hentar best. Samgöngur eiga að einfalda lífið, ekki flækja það.
Við viljum fá íbúana aftur að teikniborðinu. Skipulag bæjarins á ekki að vera ákveðið í lokuðum herbergjum með hagsmuni verktaka að leiðarljósi. Við boðum aukið íbúalýðræði þar sem fólkið í hverfunum hefur raunveruleg áhrif á sitt nánasta umhverfi. Sem tákn um blómlegt samfélag og menningu viljum við tryggja sumar allt árið í Kópavogi með glæsilegum gróðurskála fyrir almenning. Stað þar sem menning og mannlíf geta þrifist óháð veðri og vindum.
Það er ekki skortur á verkefnum í Kópavogi, en við vitum að margar hendur vinna létt verk. Við ætlum að vinda ofan af útvistun og tryggja að fjármagn bæjarins vinni fyrir íbúana en renni ekki í vasa einkaaðila í formi útvistunar.
X-J til að byggja samfélagið saman
Stjórn Sósíalistafélags Kópavogs