
Frétt
21. nóvember 2017Félagsfundur hjá sósíalistum
Félagsfundur í Sósíalistaflokki Íslands verður haldinn í Rúgbrauðsgerðinni Borgartúni 6 laugardaginn 25. nóvember. Þar verður rætt um skipulag flokksins næsta starfsár og dagsetning og dagskrárdrög Sósíalistaþings borin upp til samþykktar.
Dagskrá fundarins er svohjóðandi:
1 · Kynning á tillögu bráðabirgðastjórnar um skipurit og starfshætti flokksins sem borin verði upp til samþykktar á Sósíalistaþingi. 2 · Samþykkt dagsetningar og dagskrárdraga fyrir Sósíalistaþing í samræmi við samþykktir flokksins og verkumboð bráðabirgðastjórnar frá stofnfundi. 3 · Kjör starfshópa og stjórna sem starfa munu fram að Sósíalistaþingi. 4 · Önnur mál.
Hér má sjá viðburð fundarins áFacebook.