Sósíalistaflokkurinn
Framboðslisti Sósíalistaflokksins í Reykjavík

Tilkynning

7. apríl 2026

Framboðslisti Sósíalistaflokksins í Reykjavík

Sósíalistaflokkur Íslands býður fram fjölbreyttan framboðslista til borgarstjórnar í Reykjavík. Fólk sem vinnur á gólfinu í kerfum borgarinnar, fólk í láglaunastörfum og háskólamenntaðir, mikið framboð af öflugu ungu fólki og nemendum, reynslumiklum eldri borgurum og verkafólki, listafólki og öryrkjum, leigjendum og lántakendum. Sósíalistar öll með tölu sem brenna fyrir réttlátari borg og bjóða fram ítarlegar kosningaáherslur sem setja grunnstoðir samfélagsins í forgang.


Byggjum borg sem virkar fyrir alla – setjum X við J 16. maí

Sósíalistaflokkur Íslands býður fram fjölbreyttan framboðslista til borgarstjórnar í Reykjavík. Fólk sem vinnur á gólfinu í kerfum borgarinnar, fólk í láglaunastörfum og háskólamenntaðir, mikið framboð af öflugu ungu fólki og nemendum, reynslumiklum eldri borgurum og verkafólki, listafólki og öryrkjum, leigjendum og lántakendum. Sósíalistar öll með tölu sem brenna fyrir réttlátari borg og bjóða fram ítarlegar kosningaáherslur sem setja grunnstoðir samfélagsins í forgang.

Byggjum borg fyrir fólk ekki fjárfesta

Stofnum Byggingafélag Reykjavíkur og byggjum beint, ódýrt, gott og óhagnaðardrifið húsnæði. Bjarg hefur sýnt okkur hvað virkar með um 40% lægra leiguverð að meðaltali. Byggingafélag Reykjavíkur mun leigja út óhagnaðardrifið fyrir alla borgarbúa, selja hluta á kostnaðarverði þar sem fyrstu kaupendur og lágtekjufólk verður í forgangi og veita íbúðir beint til Félagsbústaða í félagslega útleigu. Bindum enda á lóðabrask og lóðastefnu sem keyrt hefur upp húsnæðisverð. Setjum allar lóðir borgarinnar í óhagnaðardrifna og félagslega uppbyggingu og stórlækkum þannig byggingarkostnað.

Almenningssamgöngur í höndum almennings

Almenningssamgöngur eiga að vera í eign og höndum borgarbúa. Snúum af braut útvistunar og einkavæðingar. Lækkum farmiðagjöld og tengjum leiðir betur við hverfin og þjónustukjarna. Borgarlínan er nauðsynlegt framfaraverkefni en hefur setið föst í nefndum og dýrri ráðgjafaþjónustu. Segjum nei við bílastæðaöppum þar sem einkaaðilar græða á bílastæðum borgarinnar. Tryggjum viðunandi fjölda bílastæða við nýbyggingar. Útvistun í götuþrifum og snjómokstri skal hætta og krefjumst réttlátrar skiptingar kílómetragjaldsins á milli ríkis og borgar. Leitum sáttar um Sundabraut án gjaldtöku.

Skólar sem raunverulegt jöfnunartæki

Fjölgum talmeinafræðingum, sálfræðingum, þroskaþjálfum og atferlisfræðingum og tryggjum fasta viðveru þeirra í skólunum. Fjölgum stöðugildum í leikskólum, aukum undirbúningstíma og tryggjum öllum mannsæmandi og sanngjörn laun. Stóreflum íslenskukennslu fyrir börn með erlendan bakgrunn og förum í lestrarátak, tryggjum jöfn tækifæri til íþrótta- og tómstundaiðkunar og eldum hollari og ferskari skólamáltíðir innan allra skólanna.

Lækkum matvöruverð

Byggjum Borgarbúðir í Breiðholti, Vesturbæ og Skeifunni; óhagnaðardrifnar matvörubúðir reknar af borginni til að mynda bráðnauðsynlegt akkeri fyrir þennan fákeppnismarkað. Nóg er komið af græðgisbólgu matvörurisanna, bindum enda á lífskjarakrísuna. Allar rekstrartekjur fara í fjölbreyttara vöruúrval og lægra verð.

Innvistum og hættum að sóa skattfé borgarbúa

Förum betur með skattfé almennings – Hættum útvistun verkefna. Það er bæði dýrara til lengri tíma og skilar lakari þjónustu. Þá er fyrir löngu orðið ljóst að fjármagnstekjur skuli skattleggja til jafns við launatekjur og skila útsvari og Reykjavíkurborg á að setja þrýsting á Alþingi um það sjálfsagða réttlæti. Lækkum laun og aukagreiðslur til kjörinna fulltrúa og stemmum stigu við hálaunastefnu meðal stjórnenda en láglaunastefnu í framlínustörfum grunnþjónustunnar.

Útrýmum heimilisleysi og aukum velferð

Förum finnsku leiðina og byggjum smáhýsi til að útrýma heimilisleysi. Gerum neyðarskýlin mannúðlegri og bætum aðstöðu þar í millitíðinni. Betra eftirlit með og faglega þjónustu inn í áfangaheimilin og skýrari verkferla í barnavernd. Snúum við niðurskurði til félagsheimila, fjárfestum í unga fólkinu okkar. Aukum aðgengi að sundlaugum með lægri gjöldum. Byggjum fjölbreytta kosti fyrir eldri borgara og fólk með fötlun með Byggingafélagi Reykjavíkur; hagkvæmari smáíbúðir, þjónustukjarna og hjúkrunarheimili.

Sósíalistaflokkurinn setur málefnin í forgang og lesa má ítarlegri útgáfur af þessum kosningaáherslum á heimasíðu Sósíalistaflokksins á xj.is

Framboðslisti Sósíalistaflokks Íslands til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík 16. maí 2026 (J-listi)

Nafn Aldur Starfsheiti

1. Silja Sóley Birgisdóttir 25 ára Stuðningsfulltrúi

2. Sigrún E Unnsteinsdóttir 69 ára Athafnakona

3. Hannes Pétursson 33 ára Verslunarmaður

4. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir 51 árs Öryrki

5. Jón Ferdínand Estherarson 34 ára Stjórnmálasagnfræðingur

6. Birna Gunnlaugsdóttir 64 ára Kennari

7. Rósa Guðný Arnardóttir 32 ára Nemi

8. Halldór Ísak Ólafsson 26 ára Kvikmyndagerðarmaður

9. Jökull Sólberg Auðunsson 40 ára Forritari

10. Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir 33 ára Nemi

11. Guðmundur Guðmundsson 41 árs Nemi

12. Þórhildur Katrín Pálsdóttir 19 ára Nemi

13. Davíð Aron Routley 33 ára Starfsmaður á velferðarsviði

14. Anita da Silva Bjarnadóttir 32 ára Öryrki

15. Guðröður Atli Jónsson 47 ára Tæknimaður

16. Eyjólfur B Eyvindarson 50 ára Tónlistar- og kvikmyndagerðarm.

17. Uldarico Castillo de Luna 62 ára Hjúkrunarfræðingur

18. Berglind Rut Terrazas 33 ára Umönnunarstarfsmaður

19. Anna Jonna Ármannsdóttir 64 ára Rafvirkjameistari

20. Marc Eldie Fomador 27 ára Kokkur

21. Helgi Páll Einarsson 43 ára Hönnuður

22. Bryndís Ýrr Baldursdóttir 50 ára Listakona

23. Esther Jónsdóttir 64 ára Stuðningsfulltrúi

24. Tinna Þorvalds. Önnudóttir 41 árs Söng- og leikkona

25. Hjörtur Birgir Jóhönnuson 41 ára Verkamaður

26. Hermann Karl Gunnarsson 26 ára Stuðningsfulltrúi

27. Auður Mist Eydal Halldórsdóttir 25 ára Myndlistarkona

28. Þorvaldur Þorvaldsson 68 ára Trésmiður

29. Björgvin Már Karlsson 29 ára Tónlistarmaður

30. Magnús Bergsson 64 ára Rafvirki

31. Sólrún Freyja Sen 28 ára Kvikmyndagerðarmaður

32. Hjörtur E Þorgeirsson 33 ára Deildarstjóri

33. Hjálmar Friðriksson 38 ára Atvinnulaus

34. Valtýr Kári Daníelsson 29 ára Eðlisfræðingur

35. Kristbjörg Eva Andersen Ramos 28 ára Stjórnandi

36. Stefán Örn Ingvarsson Olsen 22 ára Rafvirki

37. Kristófer Andrésson 25 ára Myndlistarnemi

38. Björn Guðmundsson 51 árs Verkefna- og gæðastjóri

39. Þorbjörg Inga Þórisdóttir 38 ára Öryrki

40. Árni Daníel Júlíusson 66 ára Sagnfræðingur

41. Björgvin Máni Ársælsson 21 árs Tæknimaður

42. Ólafur Pétur Georgsson 47 ára Kvikmyndagerðarmaður

43. Sherry Ruth Espino Buot 54 ára Athafnakona

44. Guðmundur Erlendsson 75 ára Eftirlaunamaður og kokkur

45. Júlíus K. Valdimarsson 82 ára Húmanisti

46. Sólveig Hauksdóttir 82 ára Hjúkrunarfræðingur