Frétt

27. júní 2017

Rokkstjarnan Jeremy Corbyn


„Ef ég má, þá vildi ég gjarnan vitna í eitt af uppáhalds skáldum mínum,PercyBysscheShelly, sem orti mörg ljóð snemma á 19. öldinni og ferðaðist út um alla Evrópu. Sú staka sem ég kann best við er þessi: „Rísupsem ljón eftir lúr, í krafti fjöldans, hrist burt hlekkina á jörðina eins og dögg sem fell á þig ísvefninum-þiðeruð mörg, þau eru fá““

Þessi orð voru töluð afJeremyCorbyn, formanni breska Verkamannaflokksins áGlastonburytónlistarhátíðinni, sem er ein stærsta tónlistarhátíð í heimi. Yfir hundrað þúsund gestir, hrópandi “ohJeremyCorbyn” eins og á fótboltaleik hlustuðu á töluna hans. Stærri hópur hafði ekki sést þar síðan RollingStonesvoru með tónleika þar fyrir nokkrum árum. En hver er þessiJeremyCorbyn, sem gersamlega hefur tekið æsku Bretlands með stormi? Hvernig stendur á því að þessi gamalreyndi baráttumaður sem er búinn að vera eins og hrópandinn í eyðimörkinni síðan á 8. áratug síðustu aldar er nú orðinn eins vinsæll og rokkstjarna meðal unga fólksins, aldamótakynslóðarinnar sem átti samkvæmt skrifum að vera áhugalaus með öllu um stjórnmál? Þessi 68 ára gamli pólitíkus, hetja unga fólksins. Maðurinn semTonyBlairog hægriklíkan í kringum hann almennt hlógu að, hann væri ekki til meira brúks en sem táknrænn vinstrimaður, háttvirtur þingmaðurIslingtonNorthí norðurLondon, á svæði sem er líklega þekktast fyrir að vera heimasvæði knattspyrnufélagsinsArsenal.

Ég fékk innsýn inn í hvað var á seiði þegar ég í fyrsta sinn síðan ég flutti tilLondonvar að labba í hús með stuðningsmönnum Verkamannaflokksins í kjördæmi mínu í vesturLondon. Fyrir 2 árum vann Verkamannaflokkurinn þetta kjördæmi af íhaldsþingmanni með einungis 271 atkvæða mun, svo þetta kjördæmi var ofarlega á lista yfir kjördæmi sem Íhaldsflokkurinn ætlaði að vinna auðveldlega í kosningum sem flokkurinn ætlaði sér stórsigur í. Á flokkskrifstofu Verkamannaflokksins var mættur mörg hundruð manna hópur fólks, svo stór að nágrannakjördæmum var boðin aðstoð, margir fóru yfir tilKensington, ekki vegna þess að flokkurinn hafi búist við að vinna þingsæti þar (sem gerðist reyndar, með 20 atkvæðum!),Kensingtonhafði kosið íhaldsþingmann síðan 1918! Ég og nokkrir krakkar, flestir rétt rúmlega tvítugir, löbbuðum af stað um hverfið að banka á dyr. Ég notaði tímann á milli hurða að spjalla við krakkana. Það eru varla til orð til að lýsa því hversu miklar stjörnur í augunum þetta unga fólk var með gagnvartCorbyn. Þau voru þarna til að styðjaJCog stefnu hans, miklu frekar en Verkamannaflokkinn. Hann var stjórnmálamaðurinn sem þau voru búin að bíða eftir allt sitt líf, með stefnu sem talaði beint til þeirra.

JeremyCorbyná sér langa og merka sögu í breskri pólitík. Allt frá því hann var ungur á 8. áratugnum hefur hann verið fremstur í flokki í baráttu fyrir sósíalisma og réttlæti, frá andstöðu gegnApartheidí Suður Afríku, til baráttu fyrir réttlæti til handa Palestínumönnum, baráttu fyrir réttindum samkynhneigðra og umfram allt harðri andstöðu við stríðsrekstur í Mið-Austurlöndum.Corbynvar einn af helstu leiðtogum „StoptheWarCoalition“ sem barðist harkalega gegn stríðsrekstriGeorgeW.BushogTonyBlairí Írak. Allt frá því aðCorbynvar kosinn á þing árið 1983 þá hefur hann skipað sér í hóp róttækustu þingmanna Verkamannaflokksins, þingmanna sem hafa haldið sósíalisma og stéttabaráttu á lofti. Það var einmitt þessi staðfesta sem átti eftir að vera lykilþátturinn í að höfða til unga fólksins sem stuðlaði að kjöriJeremyCorbynsem formanns Verkamannaflokksins 2015.

Eftir að Íhaldsflokkurinn náði völdum í Bretlandi 2010, með stuðninga Frjálslynda flokksins, hefur Bretland gengið í gegnum hart niðurskurðartímabil. Bætur hafa verið stórskertar, framlög til sveitarfélaga skorin niður um helming og tugum þúsunda lögreglumanna og slökkviliðsmanna var sagt upp (átti eftir að koma upp á yfirborðið í kjölfar hryðjuverkanna íLondonogManchester, auk hins hryllilega bruna í norðurKensington). Á sama tíma hefur Verkamannaflokkurinn verið í upplausn. Kosið var á milliMilibandbræðranna David ogEdí formannskosningum 2010, með táknrænni þátttökuJonCruddas, sem var talinn eitthvað til vinstri í flokknum. David var frambjóðandiBlairistannaen hann tapaði naumlega fyrir yngri bróður sínumEd. Þegar kosningar voru næst 2015 þá rak flokkurinn litlausa kosningabaráttu undir fánamiðjumoðskosningastefnuskrá. Eins og við var búist fór hægripressan (80% bresku blaðanna) í harða ófrægingarherferð gegnEdMiliband. Verkamannaflokkurinn fékk einungis 9,347,304 atkvæði eða 29% og Íhaldsflokkurinn náði hreinum meirihluta á þingi.Milibandsagði af sér sem formaður og við tóku formannskosningar sem voru álitnar verða á milli hægrimanneskjunnarLizKendall, sem studd var afBlairistum, og miðjumannannaYvetteCooperogAndyBurnham(núverandi borgarstjóraManchester).Coopervar talin tilBrownarmsinsenBurnhamvar talinn vægur vinstrimaður, studdur af stuðningsmönnumEdMiliband. Til viðbótar þessum „þungavigtarmönnum“ var síðan hinn táknræni frambjóðandi harða vinstrisins í flokknum,JeremyCorbyn, sem rétt skrapaði saman nógu mörgum tilnefningum þingmanna til að fá að vera með. En þá gerðist eitthvað.Corbyn, með sáralítinn stuðning frá þingflokki Verkamannaflokksins, tók baráttu sína beint til fólksins. Það hlustaði, sérstaklega unga fólkið sem gekk í stórum stíl í flokkinn til að geta kosiðCorbyn. Svo bættust líka eldri vinstrimenn eins og ég við, fólk sem var búið að fá upp í kok afBlairismanumog uppgjöfinni viðThatcherismann.Corbynvann stórsigur, fékk tæp 60% atkvæða. Næstur komBurnhammeð rúm 19% ogBlairistinnKendallfékk einungis 4.5%. Það ótrúlega hafði gerst, sannur sósíalisti hafði verið kjörinn formaður Verkamannaflokksins! Hægrimennirnir ogmiðjumoðararnirí flokknum sleiktu sár sín, töldu sér trú um aðCorbynmyndi ekki endast lengi. Öll pressan, líka svokölluð vinstripressa eins ogtheGuardian, fóru í stríð viðCorbyná klassískan hátt, fyrst var reynt að gera grín að honum, síðan hófst ófrægingarherferðin sem náði hámarki á kjördag 2017.

Skyndikosningar voru boðaðar nú í júní. Þegar May kallaði á kosningarnar var flokkurinn með 25 prósentustiga forskot á Verkamannaflokkinn og Corbyn talinn óvinsælasti formaður Verkamannaflokksins frá upphafi. En Corbyn og Verkamannaflokkurinn rak magnaða kosningabaráttu, sem blandaði saman fjöldafundum með Corbyn og stórfelldri netbaráttu til að vega upp á móti hinni ráðandi hægripressu. Árangurinn var stórkostlegur, Íhaldsflokkurinn missti meirihluta sinn á þingi, hékk uppi á góðum árangri í Skotlandi í fyrsta sinn í mannsaldur og vegna hruns UKIP, sem er popúlískur öfgahægriflokkur. Fylgi Verkamannaflokksins jókst meira en í öllum kosningum síðan 1945. Flokkurinn fékk 40% atkvæða, 12,877,869 atkvæði, og bætti þar með við sig um 3.5 milljón atkvæðum. Unga fólkið mætti á kjörstað betur en í langan tíma. Kosningarnar sem áttu að rústa Corbyn gerðu hann að þjóðhetju, og flestir eru á því að það sé bara tímaspursmál hvenær hann taki við sem forsætisráðherra.

Þessi ótrúlega atburðarás er ekki einsdæmi í Bretlandi. Við fylgdumst með uppgangi Bernie Sanders í Bandaríkjunum, annars sósíalista í eldri kantinum sem náði til unga fólksins. Á Íslandi sjáum við róttækni aukast og Enhedslistinn (flokkurinn sem er lengst til vinstri í Danmörku) er á mörkum þess að verða stærsti flokkurinn í borgarstjórnarkosningunum í Kaupmannahöfn. Sérstaklega er unga fólkið að vakna, vill ekki þennan heim sem við höfum búið til handa þeim. Klassísk sósíalísk gildi eru aftur í tísku, í nýjum 21. aldar búningi. Baráttan er rétt að byrja, auðurinn heldur áfram að safnast í sífellt færri hendur. En alvöru vinstrimennska, sósíalismi er svo sannarlega á uppleið. 21. aldar sósíalismi sem byggir á aldagamalli baráttuhefð. Því orð Shelleys sem Corbyn vitnaði í á Glastonbury hátíðinni eru jafn gild í dag eins og þau voru fyrir 200 árum. Við erum mörg, þau eru fá.

Guðmundur Auðunsson