Frétt

1. mars 2019

Súpueldhús – fjáröflunarkvöldverður sósíalista


Kvöldverður í góðum félagsskap til styrktar góðum málstað og vaxandi hreyfingu. Súpa, hummus, brauð og aðrar veitingar á sanngjörnu verði. Andvirðið rennur til fundahalda á vegum Sósíalistaflokksins. Engar ræður, varla ávarp, smá söngur en mest líflegt spjall borðfélaga.

Húsið opnað kl. 18:30, borðhald hefst kl. 19:15 í sal Dósaverksmiðjunnar í Borgartúni 1. miðvikudagskvöldið 6. mars.

Máltíðin kostar 1500 kr. á mann. Þau sem vilja leggja meira til er velkomið að gera það.

Viðburðurinn á Facebook:Súpueldhús sósíalista – fjáröflunarkvöldverður

Allir sósíalistar og áhugafólk um réttlátt samfélag velkomið

Súpueldhús – fjáröflunarkvöldverður sósíalista | Sósíalistaflokkurinn