Stofnum þrjár Borgarbúðir í Reykjavík
Borgarbúðir
Lítilvægur kostnaður – gríðarlegur ávinningur
Samstarf við verkalyðshreyfinguna fyrir dreift eignarhald
Sjálfbært verkefni og matarkarfan stórlækkar
Ítarefni
Byggjum óhagnaðardrifnar Borgarbúðir – Lækkum matvöruverð
1. Stofnum þrjár Borgarbúðir í jafnri dreifingu í Reykjavík – Lækkum matvöruverð
Matvöruverð hafa hækkað uppúr öllu valdi síðustu ár og þar með verið verulegur skaðvaldur fyrir heimilin í lífskjarakrísunni. Stórfyrirtæki á matvörumarkaði hafa skilað methagnaði upp á marga milljarða á hverju ári. Þessi ofurhagnaður kemur frá almenningi sem borgar meira fyrir allar vörur í dag en nokkru sinni fyrr. Þetta er græðgisbólga, ekki viðbrögð vegna verðbólgu. Borgarbúðir skal reisa á að minnsta kosti þremur stöðum í jafnri dreifingu yfir Reykjavík. Til dæmis nálægt stúdentabyggð Vesturbæjar og nærliggjandi hverfum þar sem skortur er á matvöruverslunum, miðsvæðis nálægt við eða í Skeifunni fyrir stóru íbúðahverfin til norðurs og suðurs og í Breiðholti, fjölmennasta hverfi borgarinnar.
2. Kostnaðurinn er lítilvægur – ávinningurinn gríðarlegur
Tilkoma Prís hefur þegar sýnt mikil tækifæri á lágvörumarkaði og að töluvert svigrúm til vörulækkana sé mögulegt, enn frekar ef hagnaðarkrafan er engin. Rekstrarafgangur Reykjavíkurborgar á síðasta ári nam ríflega 10 milljörðum króna. Að verja broti af þeirri fjárhæð í að lækka með beinum hætti matarkörfu íbúa með óhagnaðardrifnum Borgarbúðum er því lágur verðmiði miðað við samfélagslega ávinninginn. Ávinningurinn fyrir heimilin af lækkaðri matarkörfu er ómetanlegur og án hagnaðarforsendu má tryggja lágt verð og fjölbreytt úrval.
3. Skoða samstarf við verkalýðshreyfinguna fyrir dreift eignarhald
Skoða má samstarf við stéttarfélög við slíkt verkefni og dreifa kostnaðinum frekar. Einnig er það spurning um að tryggja dreift eignarhald svo að erfitt sé fyrir sérhagsmunaflokkana að leggja þær niður eða selja með einu pennastriki.
4. Verkefnið er sjálfbært og matarkarfan stórlækkar
Til lengdar rekur verkefnið sig sjálft þar sem áherslan verður á enga hagnaðarkröfu og því fara allar tekjur í að gera reksturinn sjálfbæran. Á sama tíma munu íbúar njóta ódýrari matarkörfu og stóraukinna lífsgæða sem því fylgir.