Sósíalistaflokkurinn

Velferð og öryggi í borg sem er fyrir alla

1. Sjálfstæðir eldri borgarar

Byggjum fjölbreytta og hagkvæma kosti fyrir eldri borgara með Byggingafélagi Reykjavíkur

Heilbrigðiskerfið og hjúkrunarheimilin eru að sligast undan því álagi sem fylgir þjóð sem er að eldast hratt. Áratuga uppsöfnuð innviðaskuld hefur skapast vegna skammsýni stjórnmálamanna. Nauðsynlegt er að tryggja að eldri borgarar geti lifað sem lengst og með reisn í sjálfstæðri búsetu með aðstoð ríkis og sveitarfélaga. Byggjum fjölbreytta kosti fyrir eldri borgara með Byggingafélagi Reykjavíkur; hagkvæmari smáíbúðir, þjónustukjarna og hjúkrunarheimili. Úthlutum einnig lóðum í önnur slík óhagnaðardrifin verkefni til þess að mæta fjölbreyttum húsnæðisþörfum eldri borgara.

Eflum heimaþjónustu og nauðsynlega heilbrigðisþjónustu – fyrir öruggara ævikvöld með reisn

Reykjavíkurborg á að sjá til þess að heimaþjónustan sé bæði vel fjármögnuð og vel mönnuð sem og að öflugt gæðaeftirlit fylgi þjónustunni. Rétt eins og inni á hjúkrunarheimilunum þarf að tryggja öryggi og reisn eldri borgara, en ofbeldi gegn öldruðum er algengt víða í kerfinu sem er óásættanlegt. Á hjúkrunarheimilum þarf að veita nauðsynlega heilbrigðisþjónustu eins og tannlækna, heyrnar- og augnþjónustu á staðnum í auknum mæli og fjölbreyttari aðgang að ýmis konar annarri þjónustu og tómstundum. Við viljum auka upplýsingamiðlun og fræðslu til eldri borgara um réttindi þeirra, þjónustu sem stendur til boða og aðstoð við að nálgast hana til að tryggja aðgengi.

2. Kennum tungumálið og valdeflum innflytjendur

Fræðsla til aðfluttra og heimamanna

Í Reykjavíkurborg á móttaka innflytjenda að fela í sér kerfisbundna og markvissa fræðslu um íslenskt samfélag, menningu, reglur og lög þeim að kostnaðarlausu. Slík fræðsla styrkir tilfinningu þeirra fyrir að vera samþykktir inn í samfélagið. Það þarf tvo í tangó og því ekki síður nauðsynlegt að miðla fræðslu til heimamanna um áskoranirnar sem fylgja margmenningunni. Aukinn gagnkvæmur skilningur og virðing dregur úr ótta, fordómum og mismunun og er fjárfesting til frambúðar.

Galopnar dyr að íslenskunni

Sósíalistaflokkurinn leggur áherslu á mikilvægi þess að galopna dyrnar að íslensku málsamfélagi fyrir innflytjendur: Að Reykjavíkurborg verði leiðandi á landsvísu í áherslu á mikilvægi íslenskukennslu og notkunar íslensku í samskiptum á vinnustöðum; að atvinnurekandinn Reykjavíkurborg bjóði öllum starfsmönnum sínum, sem ekki hafa íslensku að fyrsta máli, íslenskukennslu á vinnutíma. Kunnátta og færni í íslensku er og eitt öflugasta tækið til að ryðja úr vegi viðsjárverðum aðskilnaði í „við“ og „hina“. Aukin kunnátta og færni í tungumálinu opnar innflytjendum dyr, og ýtir undir samkeppnisfærni þeirra í skóla og á vinnumarkaði. Aukin færni í íslensku styrkir innflytjendur í að standa vörð um stöðu sína og réttindi.

Óháð tilkynningaleið og nafnlausar atvinnuumsóknir

Setja þarf upp óháða tilkynningaleið, sem ekki er stýrt af stjórnendum á viðkomandi vinnustað, þar sem borgarstarfsmenn geta tilkynnt brot og komið kvörtunum áleiðis án þess að óttast afleiðingar. Tekið verður á móti tilkynningum á mörgum tungumálum. Samkvæmt nýrri úttekt kom í ljós að hátt að fjórðungur starfsfólks Reykjavíkurborgar hefur orðið fyrir kynþátta- eða menningarfordómum á vinnustaðnum og vita ekki hvernig á að tilkynna þá. Þetta eru sláandi niðurstöður. Atvinnurekandinn Reykjavík getur ennfremur tryggt að hver og einn starfsmaður sem vinnur beint fyrir borgina eða er á samningi við borgina hafi framfylgjanleg réttindi á vinnumarkaði – aðgengileg á móðurmáli þeirra. Til að stemma stigu við ómeðvituðum fordómum og slagsíðu í atvinnuumsóknum skal Reykjavíkurborg innleiða nafnleysi í ráðningarferlum. Það sem gildir er starfsreynslan og menntun, ekki fyrirframgefnar ályktanir útfrá erlendu nafni.

3. Þjónusta við fatlaða – borg fyrir alla

Samfélagið er samsett af fjölbreyttum hópi fólks og er fatlað fólk þar með talið. Oft virðist gleyma að taka þann hóp með þegar verið er að skipuleggja innviði svo sem samgöngur. Fatlað fólk hefur ekki allt tök á að komast ferða sinna sjálfstætt og því er mikilvægt að almenningssamgöngur taki mið af þörfum þess hóps. Akstursþjónustan var sett á í þeim tilgangi, en hefur því miður ekki skilað þeim árangri sem lagt var upp með. Margir kvarta undan því að þjónustan sé óskilvirk, erfitt sé að fá bíl nema með góðum fyrirvara, ekki sé hægt að fá akstur á ákveðnum tíma sólarhrings osfrv. Þetta er ekki að auðvelda fötluðu fólki að taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Gæta þarf einnig að því á sértækum vinnustöðum að fólkið þar fái verkefni við hæfi og í því hlutfalli sem hentar hverjum og einum. Þá mun fólki með fötlun standa til boða fjölbreyttir kostir til húsnæðis frá Byggingafélagi Reykjavíkur; hagkvæmari íbúðum og þjónustukjarna.

4. Útrýmum heimilisleysi, frumkvæðiseftirlit með fósturheimilum og öruggari áfangaheimili

Förum Finnsku leiðina og tryggjum heimilislausum húsnæði

Ísland er ríkt land á heimsvísu og því er það til skammar að hér sé stór hópur af einstaklingum sem eru heimilislausir, en fjöldi einstaklinga nýta sér neyðarskýli borgarinnar árlega. Finnland hefur verið leiðandi í þeirri nálgun að varanlegt húsnæði án skilyrða sé hið nauðsynlega fyrsta skref fyrir fólk í þessari stöðu. Við viljum stórauka framboð úrræða á borð við smáhýsi til að mæta þessum hópi fólks. Raunverulegar aðgerðir munu bæta líf þessa hóps og spara bæði ríki og borg mikla fjármuni.

Gistiskýlunum komið í lag

Aðstaða gistiskýlanna verður að vera viðunandi með boðlega sturtu og svefnaðstöðu og opnunartími taki mið af þörfum notenda og aðstæðum líkt og veðurfari sem getur reynst þessum hópi lífshættuleg. Ennfremur er mikilvægt að enginn lendi milli skips og bryggju- gistiskýlin verða að taka á móti öllum sama hvaða sveitarfélagi þeir tilheyra. Þrátt fyrir að það sé opinberlega reglan hafa komið upp atvik þar sem einstaklingum er meinaður aðgangur vegna þess að þeir lenda í glufu í kerfinu.

Áfangaheimilum, fósturheimilum og barnavernd settur rammi og skýrt eftirlit

Ár hvert koma upp skelfileg atvik í áfangaheimilum sem eiga að þjónusta einstaklinga eftir fíknimeðferð. Reykjavík ber ábyrgð á þeim áfangaheimilum sem þau gera samning við en í reynd er eftirlit lítið og oft engir fagaðilar sem vinna á þeim. Afleiðing þessarar útvistunar starfsemi og ábyrgðar til sjálfstæðra áfangaheimila hefur reynst skelfilega. Borgin ber lagalega ábyrgð að stíga inn í og taka upp á eigin hendur rekstur og eftirlit áfangaheimila með faglegri þjónustu þar sem fíkniráðgjafar eru til staðar. Það sama gildir um fósturheimili og barnavernd, en hræðilegar uppgötvanir hafa sýnt fram á þörfina á skýrari verkferlum og betra eftirliti með þeim sem eru að taka á móti börnum í fóstur og því hvernig barnavernd er skipulögð. Frumkvæðiseftirlit er nálgun sem vantar, að Reykjavíkurborg bíði ekki eftir hörmungum eða kvörtunum, heldur stundi virkt og lifandi eftirlit að eigin frumkvæði.

5. Eflum félagsþjónustu borgarinnar með kröftugum félagsmiðstöðvum og sundlaugum

Snúum við niðurskurði félagsmiðstöðva

Niðurskurður hefur bitnað illilega á þeim stofnunum sem við treystum til að halda uppi fjölbreyttu og kröftugu félagslífi í borginni. Félagslegur vandi ungmenna okkar eykst og verður flóknari með hverju árinu. Það er brýn nauðsyn að hafa skýra langtímaáætlun til að snúa þessu við en að taka á félagslegum vandamálum sparar peninga til lengri tíma litið.

Sundlaugar eiga vera aðgengilegar öllum

Sundlaugarnar okkar er ómetanlegur menningararfur Íslendinga. Gjaldskráin hefur lengi verið of há en með tilkynntum breytingum þar á er mikilvægt að þær taki tillit til allra notenda og sé hagkvæm jafnt fyrir þá sem fara oft í sund eða sjaldan. Þá er ótækt að sundlaugarnar séu sífellt til skoðunar á niðurskurðarborðinu og viðvarandi óstöðugleiki í bæði styttingu og lengingu opnunartíma þeirra. Öflugar og ódýrar sundlaugar eru lykillinn að aðgengi allra að heilsubót og félagslífi.