Sunnudagspil Sósíalista
Framundan

Sunnudagspil Sósíalista

Sunnudagur, 26. október kl. 13:30 – Sunnudagur, 23. nóvember kl. 16:30
Hverfisgata 105, 101 Reykjavík, Ísland
Facebook

Næstu fjóra sunnudaga býður Sósíalistaflokkur Íslands til skemmtilegra samverustunda í húsakynnum flokksins — sunnudagur sem sameina félagshyggjuvist og borðspil í anda samhjálpar, leikgleði og samvinnu. 🃏 Fyrri hluti dagsins: Félagshyggjuvist Við byrjum á spilavist þar sem keppt er um sæti á vinsemdarlegan hátt. Á hverju sunnudagsspili verða veitt verðlaun fyrir tvo efstu, tvo neðstu og sérstök setuverðlaun. Að loknum fjórum sunnudögum verða einnig veitt heildarverðlaun fyrir þá sem eru stigahæstir í heildina. 🎲 Seinni hluti: Borðspilahittingur Að spilavist lokinni verður boðið upp á léttan borðspilahitting. Ýmis borðspil verða í boði og allir sem vilja spila eitthvað sérstakt spil sem þeir eiga sjálfir, mega gjarnan taka það með sér. 💸 Aðgangur: Ókeypis — en framlög í pappírsjóðinn eru afar vel þegin. 📅 Tími: 13:30-17:30 📍 Staður: Hverfisgata 105 Komdu og njóttu notalegrar stundar í félagsskap framsækins fólks!

Umræður

Engar umræður ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa!

Skráðu þig inn til að taka þátt í umræðunum.