Sósíalistaflokkurinn

Sósíalískir sunnudagar

Dentro de 6 días kl. 10

Heitt á könnunni hjá sósíalistum Já, það er heitt á könnunni alla sunnudaga á Hverfisgötu 105 Reykjavík. Um að gera fyrir kaffiþyrsta og aðra að koma og spjalla um málefni líðandi stundar smakka kexið og vinna að því að bæta samfélag okkar með uppbyggilegum samræðum. Staðsetning: Hverfisgötu 105. Reykjavík. (Á horni Hverfisgötu og Snorrabrautar) Tími: alla sunnudaga frá klukkan 10:00 til klukkan 12:00 Efni: það sem efst er á baugi í samfélaginu, nýjustu vendingar í pólitík og annað áhugavert sem dæmi: Verðlag á matvöru, húsnæðismál, skattaumhverfið, umhverfismál, kapítalisma, sósíalisma, borgar- og sveitarstjórnar mál, friðarhreyfingar, átök í heiminum, NATÓ, ESB, AL, mennta og skólamál og svo allt annað sem kaffiþyrstir vilja ræða.

Próximos
Facebook

Sunnudagspil Sósíalista

Dentro de 6 días kl. 13:30

Næstu fjóra sunnudaga býður Sósíalistaflokkur Íslands til skemmtilegra samverustunda í húsakynnum flokksins — sunnudagur sem sameina félagshyggjuvist og borðspil í anda samhjálpar, leikgleði og samvinnu. 🃏 Fyrri hluti dagsins: Félagshyggjuvist Við byrjum á spilavist þar sem keppt er um sæti á vinsemdarlegan hátt. Á hverju sunnudagsspili verða veitt verðlaun fyrir tvo efstu, tvo neðstu og sérstök setuverðlaun. Að loknum fjórum sunnudögum verða einnig veitt heildarverðlaun fyrir þá sem eru stigahæstir í heildina. 🎲 Seinni hluti: Borðspilahittingur Að spilavist lokinni verður boðið upp á léttan borðspilahitting. Ýmis borðspil verða í boði og allir sem vilja spila eitthvað sérstakt spil sem þeir eiga sjálfir, mega gjarnan taka það með sér. 💸 Aðgangur: Ókeypis — en framlög í pappírsjóðinn eru afar vel þegin. 📅 Tími: 13:30-17:30 📍 Staður: Hverfisgata 105 Komdu og njóttu notalegrar stundar í félagsskap framsækins fólks!

Próximos
Facebook

Nuestra política

El Partido Socialista de Islandia defiende cambios fundamentales en la sociedad en favor del público.

Únete a la lucha

El Partido Socialista de Islandia acepta a todos los que comparten nuestra visión de una sociedad más justa.

Apoyar al partido

Cuenta bancaria: 0133-26-4660
Número de identificación: 560914-0240